Leiðbeiningar hvernig á að skrá sig inn á mínar síður
Efst hægra megin á forsíðunni eru "Mínar síður" . Þar getur þú skoðað þá miða sem þú ert með og framkvæmt allar helstu aðgerðir eins og t.d :
- Keypt miða
- Breytt um skuldfærsluleið og sett inn nýjar kortauppýsingar
- Tekið miða úr mánaðarlegri skuldfærslu
- Sagt upp miða
- Séð vinningasögu þína
- Uppfært samskiptaupplýsingar eins og símanúmer og netfang
- Uppfært upplýsingar um bankareikning sem vinningar eru lagðir inn á
Til þess að komast inn á Mínar síður þarftu að skrá þig inn með því að nota rafræn skilríki. Einnig er hægt að nota Auðkennisappið en nánari upplýsingar um það er að finna inn á www.audkenni.is.