Rafræn vöktun

Fræðsla vegna notkunar eftirlitsmyndavéla hjá HHÍ

Ábyrgðaraðili vöktunarinnar er:

Happdrætti Háskóla Íslands, Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík. Símanúmer 563-8300 og netfang hhi@hhi.is.

Persónuverndarfulltrúi:

Hörður Helgi Helgason, lögfræðingur. Fyrirspurnum, athugasemdum og ábendingum vegna vinnslu persónuupplýsinga má beina til hans með því að senda tölvupóst á netfangið personuvernd@hhi.is.

Tilgangur vöktunarinnar:

Almennt eftirlit í öryggis- og eignavörsluskyni.

Heimild til vinnslu:

Vinnslan byggist á 6. tl. 1. mgr. 9. gr. og 6. tl. 1. mgr. 11. gr. persónuverndarlaga nr. 90/2018. Vöktun fer fram til að gæta lögmætra hagsmuna Happdrættis Háskóla Íslands af öryggis- og eignarvörslu.

Tegundir persónuupplýsinga:

Ef nauðsyn þykir, þ.e. vegna öryggis- og eignarvörslu, er unnið með myndefni sem verður til við vöktunina þar sem sjá má einstaklinga, svo sem starfsmenn, viðskiptavini eða utanaðkomandi aðila, sem farið hafa um hið vaktaða svæði og athafnir þeirra.

Viðtakendur:

Allt myndefni er aðgengilegt verkefnastjóra stafrænna lausna hjá Happdrætti Háskóla Íslands sem og vinnsluaðilanum Öryggismiðstöðinni sem hafa umsjón með framkvæmd vöktunarinnar. Eingöngu er heimilt að miðla persónuupplýsingum sem verða til við rafræna vöktun í eftirfarandi tilvikum:

  1. Hinir skráðu samþykkja það;
  2. Upplýsingarnar varða slys eða meintan refsiverðan verknað og eru afhentar lögreglu;
  3. Mælt er fyrir um miðlun upplýsinganna í lögum;
  4. Upplýsingarnar eru nauðsynlegar einum eða fleiri hinna skráðu til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja, t.d. getur efni verið afhent tryggingafélagi sé það nauðsynlegt vegna tryggingamáls.
  5. Ákvörðun Persónuverndar um að heimila miðlun upplýsinganna liggur fyrir.

Varðveislutími myndefnis:

Myndefni er varðveitt í 30 daga og er síðan eytt. Þó geta upptökur verið varðveittar lengur sé það nauðsynlegt til að krafa verði afmörkuð, sett fram eða varin vegna dómsmáls eða annarra slíkra laganauðsynja. Ef myndefni er afhent lögreglu er öðrum eintökum af efninu eytt.

Réttindi einstaklinga:

Þú átt rétt á því að skoða myndefni þar sem þú sést. Einnig áttu rétt á að fá afrit af slíku myndefni að því gefnu að það skerði ekki réttindi og frelsi annarra. Að öðru leyti fer um réttindi þín samkvæmt III. kafla laga nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, sbr. nánar ákvæði í III. kafla reglugerðar (ESB) 2016/679.

Réttur til að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd:

Þeir sem sæta rafrænni vöktun eiga rétt á að leggja fram kvörtun hjá Persónuvernd ef þeir telja að vinnsla persónuupplýsinga þeirra gangi gegn persónuverndarlögum.

×
Smelltu hér til að opna TeamViewer
Smelltu hér til að opna TeamViewer