Peningaþvætti


Allir vinningshafar þurfa að fylla út áreiðanleikakönnun samkvæmt lögum nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka.

Happdrætti Háskóla Íslands ber að tilkynna allan grun um peningaþvætti. Sérstakt eftirlit er hjá HHÍ sem skoðar alla spilun í vélum Gullnámu og einnig greiddum vinningum.

Allur grunur um peningaþvætti er tilkynntur til lögreglu í samræmi við lög!

Vinningshafar þurfa að gangast undir áreiðanleikakönnun við greiðslu vinninga. Áreiðanleikakönnun er ferli þar sem upplýsingum um viðskiptavini er safnað og þær metnar til að tryggja að þeir séu löglegir og ekki tengdir ólöglegum athöfnum eins og peningaþvætti eða fjármögnun hryðjuverka. Er þetta gert á grundvelli fyrrgreindra laga.

×
Smelltu hér til að opna TeamViewer
Smelltu hér til að opna TeamViewer